Hrafnhildur H :)

Hrafnhildar blogg

03.11.2006 20:45:11 / hrafnhildur

Braking news !!!!!!!!

Jæja elskurnar mínar þá gerðist dálítið rosalegt hjá mér.......ég er flutt aftur heim upp í sveit:D jibby
Það gerðist bara óvænt hjá mér en rosalega er ég ánægð með það:D
'Eg mun byrja að vinna í gallerí 17 í kringlunni á miðvikudaginn og það verður rosa fjör:)

En vitið þið hvað.....bíllinn minn er enn fyrir norðan og ég maren og íris fljúgum á þriðjudaginn til ak og svo keyrum við suður....hálfgert roadtrip hjá okkur skvísunum:D

En ég hefði vilja kveðja marga og svona en það verður bara að hafa það og ég mun koma reglulega til akureyrar að djamma:D
Svo var tekið svoleiðis vel á móti manni hér.....ég og maren fórum út að borða á rossopromodoro og fengum okkur vín með matnum og vorum orðnar dálítið hífaðar:$ Svo var haldið á barinn og þar fengum við okkur sex on the beach og við kláruðum held ég lagerinn...og svo kom íris til okkar og svo bara fylltist allt húsið af vinum mínum og það var sko djammað feitt á barnum í gær og maður var svolítið blekaður.....allavega hef ég ekki verið svona blekuð síðan ég veit ekki hvenær!!! En það var bara gaman og svo verður bara rólegheit um helgina til að koma sér fyrir;)

kvittið elskurnar og hafið það gott
love ya
Hrafnhildur H

» 14 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 17:31:44 / hrafnhildur

Helgin búin og ég er ekkert þunn:o)

Þá var þessari helgi að ljúka og minns er nú ekkert þunnur, og það hefur bara ekki gerst í langan tíma:) En allavega þá var ég líka bara að vinna og það var nú helvíti gaman skal ég segja ykkur:) Föstudagurinn var ég alltaf á leiðinni að kíkja út en nei nei ég nennti því bara ekki og var bara á náttfötunum mínum. Svo fór ég að vinna kl 9 um morguninn til 18:00 í gallerí og það var lítið að gera, mánuðurinn á enda og enginn á peninga til að eyða í föt:( Og svo fór ég að vinna á Capone kl 20:30 til 5:00 í nótt og það er alveg rosalega gaman að vinna á svona bar og sérstaklega þegar það er brjálað að gera eins og í gær....og hann Frikki sem var í igore var að spila og hann var alveg rosalega góður:D Og ég held ég hafi verið ömurleg í gær allir að reyna að tala við mann og maður bara einhvernveginn heyrði það ekki og hafði ekki tíma.....allt stappað í gær og ég held ég hafi ekki stoppað í 1 sec og svo allt í einu kl orðin 4 og það er bara farið að loka.....ég bara WHAT djöfull er þetta fljótt að líða!!! En ég held ég hafi bara tekið mig vel út í gær hehe:$

En svo eftir að ég var búin að vinna þá fórum við heim til mæju og ég fékk mér 1 bjór og ég bara var næstum því sofnuð standandi var svo þreytt:) En það var fínt lenti í góðu spjalli við hann Frikka og hann og 2 aðrir ætla að koma hingað 18 nóv og vera með party á stærri staðnum sem verður geggjað fjör ábyggilega:D

en allavega kvittið elskurnar mínar og hafið það gott og take care;)

Hrafnhildur H

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 19:23:56 / hrafnhildur

Fjör um helgina:)

Góða kvöldið fólk:)

Heyriði ég fór á airwaves um helgina og djöfull var gaman hjá mér......en ég fór ekki eins mikið og ég ætlaði mér!!! var dugleg að fara snemma í party hehe;) En allavega þá kommst ég með heppni heim á mánudagsmorgun með flugi.....ég átti að mæta á fund kl 9 í vinnunni og mín bara eitthvað í rvk að dundast og ákvað að tékka á flugi hvort það væri ekki örugglega laust.....og nei nei ALLT fullt og ég bara "SHIT" hvað á ég að gera?? Og svo ákvað ég að taka sénsinn og svaf heima upp í sveit og bróðir minn svaf þar líka til þess að skutla mér um morguninn upp á flugvöll og ég var á biðlista ef einhver mætti ekki. Heyriði svo vaknaði ég og ég fockin gleymdi lyklinum mínum í bílnum hennar marenar á akranesi......og ég og bróðir minn brunuð þangað og ég vakti mareni og náði lyklunum og fór til rvk og minns náði flugi með rosalegri heppni:D

Það er bara eitt sem passar við mig og það er "ég er svo heppin í óheppninni"

En allavega í gær (mánudaginn) þá fer ég á capone nýja staðinn hér á akureyri með Hildi, 'Asrúnu og Ingu og þar var frír bjór og læti....en það var samt lokað, óli geir var þar og er að fara halda eitthvað splash party þar og svo var trúbador og mín var bara komin í stuð.....rosa gaman :D Og svo er byrjað að snjóa hér og ég bara á sumardekkjum og rosa hálka úti og ég er eins og belja á svelli hringrása út um allt og þið hefðuð átt að sjá mig keyra heim eftir kvöldið í gær hahahahahahaha byrjaði að fara á móti umferð og læti;)

en allavega þá nenni ég ekki að skrifa meira er að fara í bíó með henni Agnesi sætu:D

kvittið elskurnar og hafið það gott:)

Hrafnhildur H


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 20:47:46 / hrafnhildur

Airwaves næstu helgi baby;)

Hæ elskurnar mínar:)

Heyriði seinustu helgi var geggjað gaman:) maren kom og var hjá mér alla helgina sem var alveg geggjað. Fórum á dátann á föstudeginum og það var búið að gera hann alveg geggjað flottan og ég hef aldrei séð svona góða breytingu á honum...það var alveg búið að pimpa hann upp;) good job guys;) og það var tekið rækilega á því með mareni, sisi, hildi og ásrúnu og svo má ekki gleyma strákunum gunnþóri, lúlla, einari,ella sem fór á kostum hehe, begga og öllum hinum takk fyrir helgina people :)

Svo á laugardeginum vorum við heima hjá mér bara og fengum okkur bjór og kíktum á amour sem var alveg upplifun út af fyrir sig hehe, algjör snilld að fylgjast með fólkinu sem var þarna:)

en svo er minns að koma suður næstu helgi jibby á airways jehh baby;) og þá verður djammað og svo verður tekin löng pása í djamminu eða alveg þangað til ég á afmæli hehe8)

En allavega þá var ég að kaupa mér tölvu í fyrradag þannig að nú get ég hangi meira hér á blogginu mínu hehe og verið duglegri að skrifa:)

kiss kiss og knúsar

Hrafnhildur H

og kvitta svo people;)

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 21:03:25 / hrafnhildur

Kíkið á hinu nýju síðuna mína:)

'Eg er ekki hætt með þessa alls ekki....en ég er líka með aðra og þar setti ég myndir frá kvöldinu í gær á dátanum og svoleiðis þannig að þið getið kíkt:)

 http://hrafnhildurh.minnsirkus.is

 love ya all


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 08:51:04 / hrafnhildur

Föstudagurinn 13......úúúúú

jæja þá er það föstudagurinn 13 í dag og ætli eitthvað slæmt muni gerast?? Nei allavega ekki hjá mér, hún Maren sæta kom til mín í gær og verður hjá mér um helgina:) Og það verður sko djammað hjá okkur um helgina jibby jey8) Það er eftirparty í kvöld á dátanum hjá no request og munu þeir sprengja allt í loftu þar á stað.....þeir leibbi og sveinar munu gera allt crazy tonight:D Og það eru greinilega allir að fara þangað.....er það ekki??

En allavega þá fór ég og maren í gær til hanns gunnþórs og skrifuðum alveg heilan helling af diskum......og við erum alveg mjög vel settar með tónlist núna:D

Sjáumst í kvöld people þeir sem eru á Ak;)

kiss kiss og knúsar

Hrafnhildur H


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 09:45:25 / hrafnhildur

Helmingurinn af Daft Punk er í kvöld á naza :o)

jibby ég er að koma suður á eftir:o) Og minns er að fara að djamma feitt með Mareni, 'irisi og Bergdísi og það verður sko geggjað fjör:D 'Eg kem fljúgandi kl 17:00 og mun íris ná í mig ;) hlakka geggjað til að sjá ykkur sætu skvísur;)

p.s. allir að fara á NAZA í kvöld......

kiss kiss og knúsar

Hrafnhildur H


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 10:42:35 / hrafnhildur

'Eg er í vikufríi.....og TIEFSCWARTZ í kvöld:) :) :) :) jibby

Sorry að ég hef ekkert bloggað, ég er bara ekki með tölvu á Akureyri:( Þannig að ég reyni að blogga þegar ég er með tölvu:)

En allavega þá keyrði ég heim til akranesar í gær (fimmtudaginn) og er núna í sveitinni hjá mömmu og pabba og vaknaði við að hanarnir voru að góla og svo eru 3 krummar hérna úti og lætin í þeim váááá og mig langaði helst að taka riffillinn hanns pabba og skjóta þá því þeir eru að reyna að éta æðarungana okkar.....og ef pabbi væri heima þá myndi hann skjóta þá. Því við megum skjóta máva og krumma til að passa æðarungana okkar. Og hleypti Skoppu og Týra út til að reyna að fæla þá í burtu en ekkert gengur:(

En allavega þá er ég að fara á TIEFSCWARTZ í kvöld (föstudaginn) og mig hlakkar svo til því seinast þegar ég fór á Tiefscwartz þá var alveg geggjað og það kvöld stendur alveg uppúr öllum hinum kvöldunum:) Og ef þið þekkið mig þá missi ég ekki af svona kvöldum og hef ekki misst af neinum dj síðastliðin 3 ár eða jú 1 og það var gabriel dresten og ég hef góða afsökun fyrir því!!

En ég, Maren, 'Iris og Bergdís ætlum að fara og dansa af okkur skóna ásamt fleirum vinum okkar:D Það verður geggjað fjör....

Og svo á laugardaginn þá er klúbbakvöld á Akureyri hann Leibbi er að spila ásamt honum jón frí vini mínum frá akranesi og það verður ábyggilega crazy fjör þar og ég býst við því að ég og maren komum á laugardaginn til að fara á þá:D

En ég hef eiginlega ekkert að segja í bili nema kvittið elskurnar mínar og hafið það gott:D

jú það er eitt....ég sakna bílinn minn gamla sem ég þurfti að selja tryggingunum því það var klesst á mig,  ég er alltaf að sjá svona bíla á akureyri.....

En allavega kvittið elskurnar mínar:D Og hafið það gott;)

love ya

Hrafnhildur H


» 13 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 16:45:34 / hrafnhildur

úújjeeeeee baby :o) Minns er að fara að koma suður næstu helgi.....

Jæja hend rétt hér inn að ég er að fara að koma suður næstu helgi:D Og mun ég vera að fara á sensation kvöldið (eða hvernig sem það er skrifað).

Kjellan mun djamma með langþráðu eftirsókn hjá vinum mínum í rvk og akranes:D Hlakka til að sjá ykkur og ég get ekki beðið:)

p.s. menningarnóttin er líka næstu helgi er þaggi????

Love ya all

Hrafnhildur H


» 15 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 10:40:55 / hrafnhildur

Váááá hvað er langt síðan ég bloggaði.....ég hef löglega afsökun:o)

jæja ég ætla nú ekki að blogga mikið því ég get það ekki.....ætlaði bara rétt að segja hææææ:)

En allavega þá er ekkert smá mikið að frétta af mér....og ég segji ykkur það seinna hef ekki tíma núna......þið verðið bara að bíða spennt:D hehe

'Eg hef samt eiginlega ekkert gert í sumar, hef bara verið að vinna og vinna og vinna sem er líka gottt því ég fékk stöðuhækkun í vinnunni:D Og þannig að ég er að græða peninga staðinn fyirir að eyða þeim;)En ég fæ bara frí annan hvern sunnudag þannig að ég hef ekki getað gert neitt:(

En ég er komin með mann og er ólétt og byrjuð að búa :D hehe nei smá djók em ég hef fréttir að segja ykkur......en það verðpur að bíða hehe:D

kiss kiss og knúsar

Hrafnhildur H

p.s. munið að kvitta fyrir innlitið;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 18:24:04 / hrafnhildur

í sveitinni

Hallo elskurnar mínar:D 'Eg er heima í sveitinni og ákvað að henda inn bloggi hér meðan ég er í tölvu;)

Allavega þá fór ég á djammið á Akureyri á föstudeginum með írisi og kristrúnu og það var alveg geggjað gaman, fórum á amour og hittum fullt af liði þar.....og vitið þið hver gékk inn á amour alltíeinu eins ekkert væri......Geir bróðir og ég fékk alveg sjokk því ég talaði við hann fyrr um kvöldið og hann sagði mér ekkert frá því að hann væri að koma!!! Bara gaman :D

Svo flaug ég til rvk kl 15:10 á laugardeginum og Maren nær í mig á flugvöllinn og við förum upp á skaga til systur minnar í plokkun og litun að gera okkur sætar fyir djammið:) Fórum upp í sveit til pabba áð sníkja pening og kyssa hann hæ því mamma er í frakklandi. Svo fórum við til marenar að gera okkur til og fórum til rvk að ná í bergdísi og svo fórum við heim til Bjarts og þaðan í eitthvað party sem var geggjað fjör:) Fórum svo á naza og það var ekkert mikið af fólki en samt alveg nóg en ég spáði ekkert í því því það var svo góð tónlist í gangi :) En við dösnsuðum allan tímann og það var alveg geðveikt gaman þar og svo fórum við í eftirparty sem var líka alveg geðveikt:) 'Eg er að segja ykkur það að þetta var skemmtilegasta og besta kvöld á þessu ári og ég þakka Maren og Bergdísi sérstaklega fyrir það:) Og líka öllum hinum vinum mínum sem ég var með:D

Fór svo á sunnudaginn að ná í bílinn hjá mömmu og pabba því hann var rafmagslaus í rvk því Geir bróðir skildi eftir ljós í honum.....maren gaf mér start og svo brunuðu ég og bergdís á skagann og urðum bensínlausar á akranesi....þá kom systir mín og náði í bensín handa mér og þurfti svo að gefa mér start aftur og þá fór bíllinn ekki í gang:( Þá fer hún upp í sveit til að ná í pabba fyrir mig og pabbi kemur bílnum í gang ég þurfti bara að pumpa bensínið aftur í8| Og þá förum við að skutla pabba út um allt því hann er próflaus....og það var mjög gaman, hann er svo mikið æði hann pabbi:DSvo var ferðinni aftur haldið í bæinn og fórum til hanns Bjarts og 'iris elkan mín kom líka með og svo kom ég hingað í sveitina og fór að sofa og fékk frí í vinnunni í dag oger að fara að fljúga til Akureyrar kl 21:00 í kvöld:D

En vitið það hvað er nice að vera á lausu.....ég var búin að gleyma því hvað það væri gaman....þú gerir það sem þú villt gera og enginn skiptir sér að því hehehe:D

kiss kiss og knúsar og ég elska ykkur öll:D

Hrafnhildur H


» 14 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 14:39:41 / hrafnhildur

Fréttir:)

Góðan daginn elskurnar mínar:) ég er að stelast að setja inn smá blogg hér í Farco er að vinna.....

En er með fréttir handa ykkur:) 'Eg og Beggi erum hætt saman og ég er flutt út og hann Steini sem á Farco og gallreí og allt þetta reddaði mér íbúð hérna á Akureyri því hann vildi ekki missa mig því ég ætlaði bara að fara aftur heim og þannig ég verð hérna allavega í smátíma og sjá hvernig er að vera hérna á Akureyri laus og liðugur. Og svo á ég svo marga yndislegasa vini hér á Akureyri og get varla farið frá þeim og svo eru nátturulega líka allar bestu vínkonur mínar og vinir fyrir sunnan og fjölskyldan......hvað á ég að gera????? Hjálp Plís segið ykkar skoðun mig veitir ekki af hjálp!!!

En allavega þá er ég ekki með neina tölvu núna þannig að ég mun ekki vera neitt á netinu.....bara svo þið vitið það:D

bestu kveðjur Hrafnhildur og hafið það gott og ég elska ykkur:D


» 12 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 18:57:06 / hrafnhildur

sumarið komið og allt er svo æðislegt:o)

Góðan daginn elskurnar mínar....var að koma heim úr vinnunni og er að bíða eftir beverly hills 90210 og vitið þið hvað það er gaman að það sé verið að sýna þá frá byrjun því ég ELSKAÐI þessa þætti en eru samt ekki eins og í minningu minni8| sem er bara gott því þá man maður ekkert úr þeim.

En allavega þá er ekkert að frétta nema það hvað var alveg æðislega gaman að fá mareni og írisi til mín....og svo alla famyliuna líka og svo kom hún Belinda líka og það var sko nóg að gera hjá minni og líka kynna Begga fyrir öllum í fjölskylunni minn sem er sko stór en vantaði samt suma:) Og hann kom bara vel út úr því kallinn:DOg svo voru littlin krílin hennar systur minnar sko ekki búin að gleyma því að ég ætlaði í sund með þeim....og það var ekki annað sagt en Hrafnhildur hvenar eigum við að fara í sund?? Og svo á sunnudeginum skellti ég mér í sund með þeim og það var æðislega gaman:D Og svo á mánudagskvöldið sváfu mamma og amma hjá okkur og það var gaman að hafa þær eina nótt því pabbi og afi fóru heim og þær voru lengur í íbúð og fengu hana ekki fyrr en á þriðjudag og við horfðum bara á video og höfðum það gott með mömmu og ömmu:D
En svo fóru þær heim á miðvikudaginn því mamma ákvað að skella sér til Frakklands og hún þurfti að undirbúa ferðina.....en mér fannst leiðinlegt að þær skyldu fara því við ætluðum að bjóða þeim í mat þegar foreldar Begga koma heim og kynna þau fyrir mömmu og ömmu en það verður bara að gerast seinna!!

Svo er hann að fara til stykkishólmar á sunnudaginn og þá verður minns ein í alveg 2 vikur jibby það er alltaf gott að vera einn og gera allt sem manni langar er það ekki hehe???

Og ég er í fríi næstu helgi.....loksins!!! ég er bara vinna og vinna sem er reyndar mjög gaman og alltaf gaman að fara í vinnuna og líka maður fær nett að sofa út því maður byrjar aldrei fyrr en 11:D

En ég ætlaði bara að hafa þetta stutt og koma með smá blogg....

kiss kiss og knúsar og ég elska ykkur dúllurnar mínar:D



» 6 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 19:27:16 / hrafnhildur

loksins komin með tölvu:o)

Heyriði ég vil byrja á því að segja að 8623126 númerið mitt er ekki í notkun eins og er en ekki henda því út því ég mun nota það aftur....en er með 8649278 núna þannig að þið vitið það:D
En alla vega þá er búið að gerast svo mikið síðan ég bloggaði seinast en ég hef það bara stutt:)
Fór til rvk á gellukvöld og það var alveg ógeðslega gaman og alveg geggjað að hitta þessar skvísur....en Anna fór dálitítið illa af þessu kvöldi og ég segji ekki meira þið vitið elskurnar hehe. koma með eina mynd af einhverju ógeðslegu jukki sem við staupuðum:)

Tek fram að við voru einu sem vorum að drekka!!!
Og svo ein mynd af Belindu í mótorhjólagallanum


Anna M á þennan galla og mótorhjólið:D

En svo seinustu helgi þá var staffadjamm sem var alveg geggjað gaman og það var djammað mikið:) ein mynd af okkur staffinu hér....en það vantaði nokkra...

En svo að lokum þá er 'Iris og Maren að koma á mórgun og ég bara get ekki beðið:D og svo öll famyilian mín mamma, pabbi, systkinin mín og amma og afi og öll systkinin hennar mömmu og frænkur múnar og frændar og vááá bara brjálað að gera hjá minni að hitta alla og það verður bara gaman of djammað mikið og bara alveg æðislegt8)
En people endilega kvitta og hafið það gott:)

kiss kiss og knúsar & i love ya all


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 21:42:03 / hrafnhildur

well....skólinn búinn :o)

Eða ekki alveg, ég fer reyndar í sjúkrapróf og svo eftir það er ég búinn:D Hlakkar ekkert smá til....En hún 'Iris kom á föstudaginn og núna er hún er flutt og það er alveg geðveikt sko......og hún er að fara að vinna með mér í gallerí og byrjar á mórgun:D geggjað;)

En helgin hjá mér var mjög góð:) Var að vinna á föstudaginn til 19:00 og Bergdís var á bílnum mínum og hún náði í mig og svo pickuðum við Agnesi upp og svo náðum við í 'Irisi og fórum heim tl mín og hentum Begga út hehe og gerðum okkur til og drukkum bjór og fínerí´, en svo þurfti Agnes að fara því Indiana veiktist og hún fór heim með hana og kommst ekki á djammið með okkur:( En hún var með okkur í anda :D En eftir það fórum ég, Bergdís og 'Iris á Amour og sátum þar og drukkum bjór og það var helvíti gaman hitti marga þar og svo fórum við á dátann og skemmtum okkur þar allt kvöldið:D

Laugardagurinn var þannig að ég fór svo að vinna kl 11:00 og var frekar þunn en höndlaði vinnudaginn með stæl og svo þegar ég var búinn að vinna þá kom hann Biggi heim og byrjaði að sansa matinn fyrir kvöldið því Beggi var að skutla honum Andra til Húsavíkur, og við grilluðum humar sem var alveg geðveikt gott...og Gunnþór, Stebbi , Hjörtur og Biggi komu í mat og það var drukkið bjór og haft það gott. Og svo kom 'Iris til mín og var hjá okkur og svo kom hún Bergdís líka og við ætluðum á djammið en svo einhvernveginn hættum við bara við að fara á djammið og tókum því bara rólega:D Sem ég sé alls ekki eftir hehe;)

Svo í dag vaknaði ég og náði í 'Irisi og við fengum okkur að borða og vorum á rúntinum í góða veðrinu og fórum og fengum okkur bjór á amour og sátum úti og eftir það var maður alveg búinn á því og það var farið heim að leggja sig því beggi var ennþá sofandi og ég lagðist bara út af líka sem var bara gott:D

En jamm svo er 'Omar og 'Aróra búin að eignast littla stelpu og erum við að fara að heimsækja þau núna:D

En þá kveð ég í bili og þið megið endilega kvitta......Takk :D

kiss kiss og knúsar & love ya

Hrafnhildur H


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Minningarsíða 'Ivars Pál
Ertu að fara í bíó???
Skemmtilegt hundablogg:)
minnsirkus
viltu senda sms